Kynningarbréf fyrir vígslubiskupskjör KB
Hér er uppfært kynningarbréf sem fór í póst til þeirra sem eru á kjörskrá en það er velkomið að skoða það hér og hlaða því niður, prenta út og deila hlekknum út til kynningar. Eitt af því sem breyttist er að nú eru barnabörnin orðin fimm og svo er kosningin komin fram á nýtt ár. Ég held við eigum bara að vera bjartsýn og stefna á góða útkomu fyrir kirkjuna með enn betri kjörsókn hjá vönu fólki.